Táninganámskeið |
Breyttist góði hvolpurinn þinn í sjálfstæðan og óþekkan hund þegar hann fór á kynþroskaskeiðið?
Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á að hjálpa hundinn að líða betur í öllum aðstæðum. Hundurinn á að velja að einbeita sér að eiganda eða aðra róandi hegðun í aðstæðum þar sem er mikið áreiti og að átta sig á því að stundum er bara best að slaka á. Eftir námskeiðið ertu kominn með mörg verkfæri í kistuna þína til að hjálpa hundinum þínum í ýmsum aðstæðum. Verð:Táninganámskeið: 45.000kr
8 verkleg skipti, tvisvar í viku. Táninganámskeið á döfinni: - 12. mars þrið/fimt kl. 20 - (námskeiðið tekur páskafrí)
- apríl lota dag. kemur inn fljótlega. Æfingarnar sem við forum yfir eru:
Slaka á í bælinu, finna off-takkann hjá hundinum Mæta hundum og öðru áreiti Augnsambandsæfingar Slökun í áreiti. Andleg örvun Góðar venjur og sjálfstjórn Innkall með áherslu á neyðarinnkallsæfingar. Taumganga og taumvinna Spor og aðrar leita æfingar Öll fjölskyldan er velkomin með á námskeiðið. Námskeiðið er öflugt með mikið af upplýsingum um atferli hunda og hvernig þeir læra. Þannig getið þið auðveldlega kennt þeim allskonar bæði mikilvægar og skemmtilegar æfingar í framtíðinni Kennt er með jákvæðum aðferðum sem byggjast á nýjustu rannsóknum um atferli hunda. |