HundanámskeiðAð ala upp hvolp og móta hann að æðislegum fjölskyldumeðlim er bæði mikilvæg og skemmtileg vinna. Við bjóðum upp á ýmis hundanámskeið sem er bæði fyrir hvolpa og eldri hunda bæði til gagns og gamans.
Félagslega- og umhverfisþjálfunar hliðin er sérstaklega mikilvæg fyrir þroska hvolpsins og því eru hundaeigendur að koma aftur og aftur til okkar með nýjan fjölskyldumeðlim. Við viljum endilega byrja snemma með hvolpa, já það snemma að hann er ekki full bólusettur enda tekur það tíma, dugar að hafa fengið eina sprautu til að byrja. Félagasmótunarskeiðið er bara frá 3 til 12 vikna og því er mikilvægt að byrja snemma. Við getum það þar sem við erum með flotta aðstöðu sem við þrífum og sótthreinsum reglulega. Við fylgjum þroska hundsins og hann fær ávalt að vinna á sínum hraða og fær sitt eigið rými til að vinna með ykkur í rólegheitum. Námskeiðin sem við bjóðum upp á |
|